Mót 17. september
10.9.2009 | 17:51
Næsta mót.
28.8.2009 | 15:47
Mót 20. ágúst.
21.8.2009 | 10:29
Æfingamót var haldið fimmtudaginn 20. ágúst og nú á nýjum stað Atid Laugavegi 73. Staðurinn er rúmgóður og snyrtilegur og veitingar á sanngjörnu verði svo fastlega má búast við að fleiri mót verði haldin á staðnum.
10 keppendur mættu í mótið og 8 til viðbótar í kennslu hjá Forsetanum sem gerir mætingu upp á 19 manns.
Leiknar voru 6 umferðir og leikurinn upp í 3. Óhætt er að segja að aldrei hafi mót á vegum félagsins verið jafnara þar sem enginn slapp við minna en tvö töp og endaði með því að 5 urðu efstir og jafnir með fjóra vinninga.
Úrslit:
1.-5. Jorge 4/6
1.-5. Jón Gunnar 4/6
1.-5. Hrannar 4/6
1.-5. Ingi Tandri 4/6
1.-5. Vésteinn 4/6
6.-7. Róbert 3/6
6.-7. Sigrún 3/6
8.-9. Stefán Á 2/6
8.-9. Gísli 2/6
10. Aðalsteinn 0/6
Stefán Freyr og Árni Björn voru með fyrstu tvær umferðirnar meðan beðið var eftir fleiri nemendum.
Stefán Freyr 2/2
Árni Björn 0/2
Að móti loknu tók við stórskemmtileg keppni í Sjúett
Stjórnarfundur.
21.8.2009 | 10:07
Stjórnarfundur Kotrufélagsins, 20. ágúst, 2009.
Dagskrá
- Íslandsmót.
- Önnur mót.
- Æfingamót.
- Ákvörðun næsta stjórnarfundar.
Mættir: Stefán Freyr Guðmundsson (SFG), Róbert Lagerman (RL), Gísli Hrafnkelsson (GH), Ingi Tandri Traustason (ITT)
Niðurstöður:
- Íslandsmót haldið í nóvember, SFG skoðar dagsetningu og staðsetningu. RL athugar með styrktaraðila. Fyrirkomulag mótsins miðar við a.m.k. 18 keppendur. Byrjað á 9 umferða móti með Monrad fyrirkomulagi. Fyrstu 6 umferðirnar eru leikir upp í 5 og síðustu þrjár umferðirnar upp í 7. Átta efstu komast í úrslit. Á fimmtudegi er stefnt að því að spila fyrstu 5 umferðirnar og seinni 4 á föstudegi. Byrjað ca. 18. Snemma á laugardegi hefst útsláttarkeppni. 8 manna úrslit verður leikur upp í 15, undanúrslit og úrslit upp í 21. (Athugasemd: Prófa að spila leik upp í 21 til að sjá hvað það tekur langan tíma). Keppnisgjaldi verði stillt í hóf (ca 1000kr) og rennur keppnisgjald til Kotrufélagsins. Þarf að huga að varaáætlun ef þátttaka dræm.
- Rætt um að halda Bikarkeppni eftir áramót (jan-feb) og “Mind-games” mögulega í október. Þá væri keppt í 2ja manna liðum í kotru, skák, brids og póker. Verður rætt nánar á næsta fundi.
- Æfingamót verði fyrsta og þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Mótið sem er þriðja fimmtudag mánaðar verði 6-8 umferða mót upp í 3 og boðið upp á kennslu fyrir nýliða samhliða móti. Mótið sem er fyrsta fimmtudag verði með breytilegu sniði.
- Næsti stjórnarfundur skal haldinn þegar næsta æfingamót fer fram 3. september.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næsta mót.
14.8.2009 | 00:48
Samhliða mótinu geta þeir sem styttra eru á veg komnir og treysta sér ekki í mótið fengið kennslu og spilað nokkra leiki til að fá innsýn í fegurðina.
Nýr stigalisti
17.7.2009 | 02:10
Nafn | ELO | Reynsla |
Stefán Freyr | 1731 | 101 |
Jorge | 1598 | 43 |
Sigurður | 1567 | 25 |
Jón Gunnar | 1561 | 25 |
Gunnar | 1560 | 36 |
Róbert | 1552 | 46 |
Steingrímur | 1549 | 21 |
Ingi Tandri | 1536 | 68 |
Hrafnkell | 1516 | 55 |
Stefán Þór | 1497 | 20 |
Magnús | 1495 | 20 |
Varði | 1484 | 21 |
Raili | 1455 | 20 |
Rúnar Berg | 1442 | 50 |
Helga Guðrún | 1420 | 46 |
Geir | 1406 | 20 |
Aðalsteinn | 1336 | 38 |
Gísli | 1329 | 84 |
Birgir | 1304 | 39 |
Mót 16. júlí
17.7.2009 | 02:02
Kotrumót var haldið fimmtudaginn 16. júlí á BAR 108. Mættir voru 9 keppendur sem verður að teljast ágætt miðað við fádæma veðurblíðu. Keppendum var skipt í tvo riðla.
Riðill 1
1. Ingi Tandri 3/3
2. Jorge 2/3
3. Gunnar 1/3
4. Aðalsteinn 0/3
Riðill 2
1. Stefán Freyr 4/4
2. Rúnar Berg 2/4 og 15 stig
3. Helga Guðrún 2/4 og 13 stig
4. Hrafnkell 2/4 og 12 stig
5. Gísli 0/4
Í undanúrslitum átti Stefán Freyr engin svör við spænskum göldrum Jorge og Ingi Tandri hafði Rúnar Berg undir. Í úrslitum fór Jorge á kostum og vann Inga örugglega.
Lokastaða:
1. Jorge
2. Ingi Tandri
3. Stefán Freyr
4. Rúnar Berg
5. Gísli
6. Hrafnkell
7.-8. Helga Guðrún og Aðalsteinn
Næsta mót.
2.7.2009 | 15:20
Spil og leikir | Breytt 5.7.2009 kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjáröflun
8.6.2009 | 00:15
Þar sem Kotrufélagið er ungt og allslaust ætlum við að reyna að sníkja smá aur. Aurinn verður notaður til kaupa á kotruborðum, verðlaunagrip fyrir Íslandsmót og fræðsluefni. Sníkjurnar fara þannig fram að þeir sem vilja geta afritað textann hér undir inn í Word skjal, prentað það út og farið með í sinn banka.
Beiðni um reglulega millifærslu
Nafn reikningseiganda:___________________________________
Kennitala reikningseiganda:__________________
Skuldfærslureikngur: _______ - _____ - ____________ (Banki-Hb-Númer)
Inn á reikning: 1101-05-761538 Kotrufélagið 470509-2280
Upphæð: _____________ Greiðist mánaðarlega.
Byrja millifærslu:________ Enda millifærslu: _________ □ Lætur vita
Undirritun:_____________________________
Dagsetning:_____________
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stigareikningar
7.6.2009 | 23:58