Færsluflokkur: Spil og leikir
Íslandsmót í kotru
6.9.2012 | 17:31
Í undankeppninni eru leikirnir upp í fimm þar sem keppendur detta út eftir þriðja tap þangað til fimm standa eftir.
Sjálft Íslandsmótið hefst klukkan 11:00 laugardaginn 29. september. Fimm keppendur hafa unnið sér inn þátttökurétt gegnum mót síðasta veturs, þ.e.
Jorge Fonseca
Stefán Freyr Guðmundsson
Róbert Lagerman
Daníel Már Sigurðsson
Á laugardeginum verður tíu manna mót allir við alla, leikir upp í fimm.
11:00 1. - 3. umferð
14:00 4. - 7. umferð
19:00 8. - 9. umferð
Sex efstu komast áfram í úrslit.
Á sunnudeginum eru úrslitin sem eru í útsláttarformi og leikið upp í 17.
Tvö efstu sætin frá laugardegi komast beint í undanúrslit.
3. - 6. sæti spila um að komast í undanúrslit.
3. sæti fær að velja hvort hann spilar við 5. eða 6. sætið.
Í undanúrslitum fær 1. sætið að velja andstæðing (þó ekki þann sem var í 2. sæti).
11:00 3. - 6. sæti spila um að komast í undanúrslit
14:00 Undanúrslit
19:00 Úrslitaleikur
Spilað verður í Hörpunni.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lið í Mænd Geyms
30.1.2012 | 11:25
Nokkur lið hafa þegar staðfest þátttöku, aðrir eru að hugsa sig um, leita að makker o.s.frv. Ef einhverjir hafa áhuga og vantar makker ættu þeir endilega að hafa samband við mig, stefan_freyr@yahoo.com.
Staðfestir:
B&P (Stefán Freyr Guðmundsson og Sigurður Páll Steindórsson)
Gústafsberg (Gústaf Steingrímsson og Bergsteinn Einarsson)
Einstein (Þorvarður Fannar Ólafsson og Arnar Ægisson)
(Kjartan Ingvarsson og Pétur Gíslason)
(Ingi Tandri Traustason og Hrannar Jónsson)
(Elvar Guðmundsson og Jón Gunnar Jónsson)
(Gísli Hrafnkelsson og Jorge Fonseca)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mænd Geyms
23.1.2012 | 19:57
Þá er komið að skemmtilegasta móti ársins. Mænd Geyms fer fram fyrstu helgi í febrúar. Opinbera auglýsingin er:
Liðin þurfa að skrá sig undir einhverju nafni og mega gjarnan gera það tímanlega. Það má til dæmis melda sig hér í athugasemdakerfinu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bikarmót
5.1.2012 | 13:21
Bikarmót verður haldið á Bar 46, laugardaginn 7. janúar klukkan 16:30. Tvöfaldur útsláttur, þ.e. eftir sitt annað tap falla menn úr keppni. Hliðarmót fyrir þá sem falla snemma úr aðalkeppninni.
Sigurvegari hlýtur að launum öruggt sæti í úrslitum næsta Íslandsmóts auk kassa af bjór.
Nýliðar boðnir sérstaklega velkomnir.
P.S. Það stefnir í góða þátttöku, skráðir eru:
Íslandsmeistarinn Gísli Hrafnkelsson
Stefán Freyr Guðmundsson
Markús Guðmundsson
Eygló Guðjónsdóttir
Ingi Tandri Traustason
Jorge Fonseca
Bjarni Freyr Kristjánsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Ástvaldur Sigurðsson
Hörður Sturluson
Björn Friðgeir Björnsson
Ingimar Ingimarsson
auk nokkurra sem eiga eftir að staðfesta komu sína.
Stofnfundur Kotrusambands Íslands
5.1.2012 | 13:15
Kotrusambands Íslands er hugsað sem landssamtök kotrufélaga og mun sækja um aðild að alþjóðasamtökum kotruspilara.
Áhugasamir ættu endilega að bjóða sig fram í stjórn eða varastjórn.
Uppkast að lögum má finna hér:
https://docs.google.com/document/d/12J5u6m0l-cJLhqvpcUQfwIYfCCaiibunR7FUIFERV6Q/edit?hl=en_US
https://docs.google.com/document/d/1DgmPsdROz8fZFHkuszh_7TsFZ3gn9qAP80DI_0phvEg/edit?hl=en_US
Stig
5.1.2012 | 13:14
Eftir langt og strangt Íslandsmót hefur stigalistinn tekið töluverðum breytingum. Gísli Hrafnkelsson hefur rokið upp listann á meðan Íslandsmeistari síðasta árs hefur dalað aðeins. Enn er Stefán Freyr stigahæstur og gerast þær raddir æ háværari að það sé álíka trúverðugt og rússneskar þingkosningar.
Listinn fyrir 10 stigahæstu spilara er eftirfarandi (einskorðað við þá sem hafa reynslu >= 100):
Allur listinn:
Æfingamót
5.1.2012 | 10:42
Æfingamót var haldið laugardaginn 19. nóvember á Bar 46. Tveir nýir spilarar mættu til leiks og stríddu "gömlu" kempunum.
1.-2. Stefán Freyr og Róbert 3/4
3. Jorge 2/4
4.-5. Ástvaldur og Guðlaugur 1/4
Íslandsmót - úrslit
5.1.2012 | 10:38
Úrslit Íslandsmótsins hófust með þremur umferðum föstudaginn 23. september. Stefán Freyr byrjaði vel og vann alla þrjá leiki kvöldsins, Gísli, Ing Tandri og Jorge fylgdu fast á eftir með tvo vinninga. Íslandsmeistarinn Gunnar byrjaði afleitlega og tapaði öllum leikjunum og jafnan með minnsta mun.
Laugardagurinn hófst með látum, Ingi Tandri vann Stefán á meðan Gísli og Jorge unnu sína leiki. Þar með voru fjórir efstir og jafnir með þrjá vinninga. Í fimmtu umferð áttust við fjórir efstu, Jorge vann Stefán og Gísli vann Inga Tandra. Báðir leikir unnust með minnsta mun. Óförum Íslandsmeistarans var síður en svo lokið. Eftir fimm umferðir var hann enn án vinnings. Kjartan var nú komin að hlið Stefáns og Inga Tandra með þrjá vinninga, Markús með tvo og Elvar einn.
Í sjöttu umferð fóru línur að skýrast, Gísli vann Stefán, Markús vann Inga og Jorge vann Kjartan. Helstu tíðindin voru þó fyrsti vinningur Gunnars gegn Elvari. Baráttan stóð því milli Gísla og Jorge og Gísli orðinn öruggur um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Jorge hefur enn ekki fetað í fótspor Duranona og Fischers og nælt sér í íslenskan passa.
Gísli og Jorge unnu báðir í síðustu umferð og Ingi stöðvaði sigurgöngu Gunnars snarlega og endaði í 3.-4. sæti ásamt Stefáni.
Standings
Place Name Score Berg. 1-2 Gísli Hrafnkelsson, 6 19.00 Jorge Fonseca, 6 16.00 3-4 Ingi Tandri Traustason, 4 9.00 Stefán Freyr Guðmundsson, 4 8.00 5-6 Kjartan Ingvarsson, 3 10.00 Markús Guðmundsson, 3 6.00 7-8 Elvar Guðmundsson, 1 3.00 Gunnar Gunnarsson, 1 1.00
Cross Table
by Swiss Perfect (TM) www.swissperfect.com
No | Name | #1 | #2 | #3 | #4 | #5 | #6 | #7 | #8 |
1. | Markús Guðmundsson, | * | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 | 0 | 0 |
2. | Gunnar Gunnarsson, | 0 | * | 0 | 0 | 1 | 0 | 0 | 0 |
3. | Jorge Fonseca, | 1 | 1 | * | 1 | 1 | 1 | 0 | 1 |
4. | Kjartan Ingvarsson, | 1 | 1 | 0 | * | 0 | 0 | 1 | 0 |
5. | Elvar Guðmundsson, | 0 | 0 | 0 | 1 | * | 0 | 0 | 0 |
6. | Ingi Tandri Traustason, | 0 | 1 | 0 | 1 | 1 | * | 0 | 1 |
7. | Gísli Hrafnkelsson, | 1 | 1 | 1 | 0 | 1 | 1 | * | 1 |
8. | Stefán Freyr Guðmundsson, | 1 | 1 | 0 | 1 | 1 | 0 | 0 | * |
Íslandsmót - undanrásir
23.9.2011 | 10:04
Í gærkvöld voru spilaðar undanrásir fyrir Íslandsmótið í kotru. Leikir voru upp í fimm og fyrirkomulagið svokallaður þrefaldur útsláttur. Við þriðja tap falla menn úr keppni. Spilað var um sex laus sæti í úrslitum og því spilað þangað til 6 voru enn á lífi.
Tólf keppendur börðust um sætin sex, þeir sem töpuðu þrisvar voru:
Gústaf Steingrímsson eftir þrjá leiki,
Sigurður Páll Steindórsson eftir þrjá leiki,
Ingimar Ingimarsson eftir fjóra leiki,
Daði Hannesson eftir fimm leiki,
Árni Björn Ómarsson eftir fimm leiki,
Jón Gunnar Jónsson eftir sex leik og
Markús Guðmundsson eftir sex leiki.
Markús komst áfram.
Þeir fimm sem eftir voru:
Ingi Tandri Traustason, Elvar Guðmundsson, Kjartan Ingvarsson, Gísli Hrafnkelsson og Jorge Fonseca.
Í úrslitum, sem hefjast klukkan 18 í kvöld í húsnæði Skáksambands Íslands, keppa því:
Gunnar Gunnarsson, Stefán Freyr Guðmundsson, Ingi Tandri, Elvar, Kjartan, Gísli, Jorge og Markús.
Áhorfendur eru velkomnir.
Góð þátttaka
21.9.2011 | 19:55
Það stefnir í góða þátttöku í Íslandsmótinu í kotru.
Eftirtaldir hafa staðfest þátttöku sína og nokkrir eiga enn eftir að ákveða sig:
Gunnar Gunnarsson *
Daníel Már Sigurðsson *
Stefán Freyr Guðmundsson *
Gísli Hrafnkelsson
Ingi Tandri Traustason
Ingimar Ingimarsson
Vilhelm Patrick Bernhöft
Kjartan Ingvarsson
Jorge Fonseca
Jón Gunnar Jónsson
Sigurður Páll Steindórsson
Valur Grettisson
Árni Björn Ómarsson
Markús Guðmundsson
Daði Hannesson
* hafa unnið sér þátttökurétt í úrslitum.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)